
Ferlið
Svona gengur verkefni fyrir sig, frá tilboðsbeiðni til uppgjörs.

Tilboðsbeiðni
Tilboðsbeiðni í burðarvirki úr krosslímdu timbri. Gögn sem við þurfum eru arkitektateikningar, þ.e. grunnmyndir, snið og útlit, fyrst og fremst á PDF-formi en gott er að fá DWG og/eða módel líka. Við þurfum að vita nákvæma staðsetningu byggingarinnar, hvort timbur eigi að vera sýnilegt í veggjum og loftum og hvers konar þakuppbygging er áætluð.

Tilboðsgerð
Við sendum vandað tilboð með sundurliðuðum verðum og iðulega mynd af burðarvirkinu. Þar kemur fram hvað er innifalið: burðarvirkjahönnun, gerð burðarvirkjateikninga, efnisöflun timbureininga, límtrésbita og -súlna og hefðbundið festingaefni. Við getum einnig gefið verð í uppsetningu sé þess óskað. Tilboðsgerðin tekur alla jafna 2–5 vikur. Hluti verðsins er háður gengi evru.

Samningur
Þegar tilboði hefur verið tekið útbúum við samning um verkið. Greiðsluskilmálar miðast alla jafna við fyrirframgreiðslur sem dreifast yfir allt ferlið.

Hönnun
Element sér um hönnun burðarvirkja úr krosslímdu timbri auk mögulegra límtrés- og stálstyrkinga. Við gerum módel af burðarvirkinu þar sem sjá má stærðir, skiptingu eininga, legu timbursins og fræsingar vegna lagna. Módelið er yfirfarið af eiganda og öðrum hönnuðum og allt hönnunarferlið er unnið í nánu samstarfi við arkitekt, lagnahönnuði og hönnuð undirstaðna. Við útvegum kraftaplan vegna undirstaðna og sjáum um greinargerð vegna okkar hönnunar. Við lok hönnunar afhendum við uppáskrifaðar teikningar sem nýtast sem uppsetningarteikningar.

Framleiðsla og afhending
Timbureiningarnar eru framleiddar með ±2 mm nákvæmni í verksmiðju KLH í Austurríki. Þar er þeim raðað á vagna sem eknir eru til Rotterdam og þaðan með ferju til Þorlákshafnar. Frá Þorlákshöfn eru vagnarnir fluttir á byggingarstað. Mikið er lagt upp úr skipulagi afhendingarinnar: efsta eining á fyrsta vagni er sú sem reist er fyrst og svo koll af kolli, og reist er beint af vögnunum. Fjöldi vagna fer eftir umfangi verkefnisins.

Uppsetning
Element getur séð um uppsetningu timbureininga fyrir sína viðskiptavini. Við sjáum þá um uppsetningu okkar hluta burðarvirkisins og útvegum þau tæki og þann búnað sem þarf. Alla jafna eru 4–5 menn í uppsetningargenginu. Þegar uppsetningu er lokið er næsti verkþáttur að þétta bygginguna og setja í glugga og hurðir.

Uppgjör
Saman förum við yfir afhent verk. Við útbúum uppgjörsskjal og í framhaldinu er lokagreiðsla innt af hendi.
