Veggur úr krosslímdu timbri með merki Element
Element ehf.

Fyrirtækið

Umboðsaðili KLH á Íslandi og innflytjandi forsmíðaðra baðherbergja frá Green Box A/S.

Element ehf.

Þekking á efni og framkvæmd

Element ehf. flytur inn krosslímt timbur frá austurríska framleiðandanum KLH Massivholz GmbH og forsmíðuð baðherbergi frá danska framleiðandanum Green Box A/S.

Í gegnum verkefni okkar með krosslímt timbur frá árinu 2015 höfum við aflað okkur mikillar sérþekkingar og reynslu sem nýtist viðskiptavinum okkar. Forsvarsmenn fyrirtækisins hafa einnig margra ára reynslu úr byggingargeiranum.

Element varð til í framhaldi af verkefninu Fosshótel Jökulsárlón. Við mat á efnisvali burðarvirkja þessa rúmlega 100 herbergja hótels var ákveðið að nota krosslímt timbur frá KLH. Í kjölfar þessa fyrsta verkefnis, sem var jafnframt stærsta verkefni á Íslandi með krosslímt timbur á þeim tíma, fengum við umboðið á Íslandi.

Árið 2022 kynntumst við danska framleiðandanum Green Box A/S, sem framleiðir forsmíðuð baðherbergi.

Við leggjum mikið upp úr heiðarlegum viðskiptum, fagmennsku og því að skila góðum verkum.

Veggur úr krosslímdu timbri með merki Element

Teymið

Teymi Element

Teymið samanstendur af einstaklingum með ólíkan bakgrunn og styrkleika en eitt markmið: að veita framúrskarandi þjónustu í öllum okkar verkefnum. Við njótum þess að vinna að verkefnunum og tökum nýjum áskorunum fagnandi.

Sverrir Steinn Ingimundarson

Framkvæmdastjóri · iðnaðartæknifræðingur

Um 20 ára reynsla af sölu og verkefnastjórnun í byggingargeiranum.

782 9099 · sverrir@element.is

Ingvar Rafn Gunnarsson

Byggingarverkfræðingur · löggiltur burðarvirkjahönnuður

20 ára reynsla af burðarþolshönnun og verkefnastjórnun. Hann skrifar undir þær teikningar sem Element gefur út, hvort sem hönnunin er unnin innan fyrirtækisins eða hjá erlendum samstarfsaðilum.

863 3921 · ingvar@element.is

Birgir Hrafn Sæmundsson

Byggingartæknifræðingur og húsasmíðameistari

10 ára reynsla af verkefnastjórnun í byggingarframkvæmdum.

848 1099 · birgir@element.is

Karl Sigfússon

Stjórnarformaður · byggingarverkfræðingur

Um 25 ára reynsla af stjórnun og skipulagningu framkvæmda. Rekur BEKA ehf.

615 1133

Eigendur: Sverrir Steinn Ingimundarson, Karl Sigfússon, Ingvar Rafn Gunnarsson og Birgir Hrafn Sæmundsson.

Samstarf

KLH

Element er umboðsaðili KLH Massivholz GmbH á Íslandi.

Green Box

Element flytur inn forsmíðuð baðherbergi frá Green Box A/S.

BEKA ehf.

Element vinnur náið með verkefna- og byggingarstjórnunarfyrirtækinu BEKA ehf., sem Karl Sigfússon rekur.

Á skrifstofu Element
Hafðu samband

Ertu með verkefni í huga?

Sendu okkur teikningar og við gerum þér tilboð.

Óska eftir tilboði