
Krosslímt timbur
Vistvænt byggingarefni með hátt burðarþol í veggi, gólf og þök.
Krosslímt timbur (KLT, CLT, cross laminated timber) er vistvænt byggingarefni sem opnar frábæra möguleika fyrir húsbyggjendur.
Það er framleitt í plötum úr timburlögum sem eru límd saman hvert þvert á annað undir miklum þrýstingi. Þannig fæst byggingarefni með hátt burðarþol sem nýtist í burðarvirki bygginga, í loft, þök og veggi. Krosslímdar timbureiningar frá KLH eru sérframleiddar fyrir hvert verkefni með tímastilltri afhendingu (e. just in time).
Einingarnar koma tilsniðnar á byggingarstað með hífingarlykkjum og tilbúnar til uppsetningar. Hægt er að fá þær með álímdum öndunardúk frá verksmiðju. Öndunardúkurinn ver timbrið meðan á uppsetningu stendur og getur, með réttum frágangi, vegið þungt í að loftþétta bygginguna. Eftir uppsetningu eru einingar í útveggjum einangraðar að utan og klæddar. Einingar í innveggjum og loftum eru annaðhvort klæddar, t.d. með gipsplötum, eða ysta lag þeirra látið halda sér.
Af hverju krosslímt timbur?
Krosslímt timbur í myndum


Um KLH
KLH er fjölskyldufyrirtæki og brautryðjandi í framleiðslu á krosslímdu timbri. Í dag er það einn stærsti framleiðandi þess í Evrópu. Verksmiðjur KLH eru í miðhluta Austurríkis, nærri skógunum. Fyrsta verksmiðjan opnaði árið 1999 í Katsch og önnur, ný verksmiðja árið 2020 í Bad St. Leonhard í Kärnten, með framleiðslugetu upp á um 125.000 m³ af krosslímdu timbri á ári.
www.klh.at ↗Gæði og vottanir







Ertu með verkefni í huga?
Sendu okkur teikningar og við gerum þér tilboð.
Óska eftir tilboði